|
|
15.10.2006 22:40:52 / hildur
Farin á blogspot..
Ef ég vil að þið finnið mig, læt ég ykkur vita
»
13.10.2006 11:06:36 / hildur
Jújú ný helgi að byrja, mér finnst þessi vika samt hafa verið
svolítið lengi að líða sko, en vottevvv...
Það eru engin stór plön fyrir helgina nema bara að vinna.. og
vinna. Var að vinna í gær frá 13-21, án efa skemmtilegast í heimi!
Nei jú það er fínt..
Eníhú ég hef ekkert að segja, er búin að vera í eyðu núna frá
hálftíu og verð til tólffjörtíuogfimm, fer í einn náttúrufræðitíma
og er mínum skóladegi þar með lokið, en þá tekur við rennsli á
skemmtilegasta leikriti í heimi, frá klukkan fimmtánnúllnúll til
einhvers óákveðins tíma. Vona samt að við klárum þetta fyrir
klukkan tuttuguogeitt því að þá ætlaði ég út að borða með nokkrum
skiptinemagreyjum.. þ.e.a.s. fyrrverandi skiptinemum. En eins og
æfingin á skemmtilegasta leikriti í heimi gekk á miðvikudaginn þá
verðum við að langt fram á nótt..
You gotta do what you gotta do..
Hildur sem ætlar að leggja sig til tólf
»
11.10.2006 22:39:38 / hildur
As I sit here drinking my skyr.is drink..
Nei ok íslenska já. Helgin... var bara fjandi skemmtileg. Ég fór
á ræðukeppni á föstudagskvöldið, VÍ-mr dagur, mjög skemmtilegt.
Reyndar ekki rétt lið sem vann en það er önnur saga. Þessi blessaða
keppni stóð svolítið lengi eða alveg til hálftólf, en þá skutlaði
ég henni Söru bara heim og fór svo heim að sofa í hausinn á mér.
Mín þurfti nefnilega að vakna snemma til að bruna upp í Vindáshlíð
að hitta skiptinemaliðið. Það var sem sagt sjálfboðaliðanámskeið
sem var bara voða skemmtilegt, það voru frábærir krakkar og ohhh
þessir skiptinemar eru svo sætir.. (þá meina ég algjör krútt) Við
kenndum þeim t.d. lagið "Það eru hommar í Versló", klárlega lag
helgarinnar.. Svo var kvöldvaka og skemmtilegheit bara, fengum
einmitt að láta eins og 10 ára krakkar, sem er mjög gaman að fá að
gera öðru hverju! Ég kom svo bara heim á sunnudaginn og lá í
algjöru leti og afslöppun. Svo kom Steinar og við spjölluðum
eitthvað..
Annars er það bara skóli skóli skóli, vinna (já ég er komin með
vinnu í Hans Petersen fyrir þá sem ekki vita, sel fólki myndavélar
í gríð og erg án þess að vita nokkuð meira en hversu margir
megapixlar og hvernig zoom er á myndavélum.. aumingja fólkið),
læra, skóli vinna læra skóli skóli leikæfingar skóli leikæfingar
skóli borða sofa.
En já, annars bara on with the partý!
Hildur drinking skyr.is
»
20.09.2006 20:17:02 / hildur
Ég er alveg að gefast upp á þessari blessuðu síðu sko.. Sýnir
sig kannski í því hvað ég er dugleg að blogga.. Held samt líka að
fólk bara vilji alls ekki þekkja mig lengur af því ég er ekki í
útlöndum! hmmm
Annars er það bara Verzló.. og fleira.. Sé ykkur
Hildur
»
13.09.2006 23:52:43 / hildur
...blogg, blogg, blogg snemm' að morgni, blogg, blogg, blogg
yfirleitt, í bloggi kann ég minn' en ekki neitt!
Svona sungu Bubbi og Ómar Ragnars eitt sinn um boxið.. í
áramótaskaupinu 98 ef ég man rétt..!
Hvað segiði annars? Bara fínt já, ég líka sko. Ég er bara
eitthvað að dúlla mér í skólanum og reyna að byrja í hokkíinu
aftur, sem hefur gengið svolítið treglega, hef ekki komist tvisvar
í röð.. en ég fer næst! Engin spurning! Svo eru nú stóru fréttirnar
að ég er farin að keyra um götur borgarinnar og hefur það gengið
nokkuð vel, allavega svona hingað til sko!
Elfa Björk kom suður í dag, ég og Steinar fórum og hittum hana
og Unu, fórum á Pizza Hut og skutluðum þeim svo á æfingu. Eftir það
fórum ég og Steinar aftur á Pizza Hut til að fá okkur svona
súkkulaðidrullueftirrétt, mmmm! Voða gaman!
Annars er voða lítið í gangi svona þessa dagana, jú ég komst í
litla leikritið í Verzló, prufur fyrir Nemó (stóra leikritið) eru
núna að byrja á morgun, veit ekki hvort maður á að fara sko.. Verð
bara að reikna með tíma til að læra, en það hefur nú eitthvað farið
forgörðum svona síðustu daga víst.. nema í gærkvöldi, var ekkert
smá dugleg!
Svo er það bara busaballið næst á dagskrá, á Broadway þakka þér
kærlega, fyrirpartý hjá Brynjari í bekknum mínum, allur pakkinn
bara!
Sé ykkur seinna, veriði nú dugleg að
kommenta!
Hildur pildur
»
06.09.2006 00:28:42 / hildur
Þarna plataði ég ykkur greyin.. Busunin var sko ekkert svona
allsvaðaleg eins og ég lét í ljósi hérna í gærkvöldi, en það var
mjög gaman samt.
Byrjuðum á því að vera sótt inn í stofur eftir hádegismat og
vorum látin marsera niður á marmara (þar sem maður situr í hádeginu
eða þegar eitthvað er í gangi...sennilega eins og kvosin í MA) og
syngja og svoeiðis bull. Síðan vorum við skírð í nafni Versló,
fórum í rútum niður í Nauthólsvík og þar voru alls konar þrautir og
skemmtilegheit. Þetta var semsagt eiginlega bara skemmtidagur sko!
Svo í kvöld var nýnemakvöld og þar voru nefndir kynntar, kaka
borðuð (og kókosbollur með sinnepi reyndar), og síðast en ekki síst
farið í leiki með skemmtó (sem sagt skemmtinefndinni). Já svo má
ekki gleyma því að við vorum látin sverja eið sem innihélt m.a. að
við myndum aldrei mæta ótilhöfð í skólann, eiga MR-inga sem vini,
yrða á efribekkinga að fyrra bragði, við ættum alltaf að vera
kurteis og undirgefin við efribekkinga og láta þeim eftir sæti og
stað í röðinni í matbúðinni (mötuneytið). Ég átti reyndar erfitt
með að fara með eiðinn sökum hláturskast á háu stigi.
Já that's it!
Hildur officially Verzlingur
»
04.09.2006 23:33:40 / hildur
Busadagur. Á morgun.
"Mætið í fötum sem mega svo gott sem eyðileggjast."
ó mæ
Blogga kannski aftur, ef ég verð á lífi
»
03.09.2006 20:55:31 / hildur
Arg. Ég var búin að blogga og eitthvað gerðist, ég hef örugglega
ýtt á eitthvað.. Og það bara fór. Dang it.. Jæja, þýðir ekki að æsa
sig..
En já ég sagði nú bara að ég hefði verið látin fara upp í bústað
til Báru frænku í stað þess að læra í dag af henni móður minni..!
Hún er nú alveg sko. En það þýðir bara að núna verð ég að fara að
læra!
Sunna systir og Elmar komu um helgina og við fórum nú að versla
í gær, tókst að eyða alveg dágóðum slatta af peningum þarna í
Kringlunni sko! Fór einmitt líka að versla á föstudaginn þannig að
nú er ég hætt að eyða peningum! Keypti mér kápu, tvennar
gallabuxur, peysu, bol, svona bol/kjól dæmi, stígvél og svona
smotterí eitthvað líka.. já og skol í hárið á mér. Býður sig
einhver fram í að setja það í?
Annars verð ég eiginlega að fara að læra, maður verður að mæta
ferskur á mánudegi í skólann ekki satt?! Það er komin ný
skoðanakönnun bæ ðe vei! Bið bara að heilsa ykkur í bili..
Hildur ómægoð þriðja vikan í skólanum að
byrja
»
29.08.2006 20:25:36 / hildur
Ég bara skil þetta ekki mér dettur aldrei neitt sniðugt í hug
til að blogga um, sit bara fyrir framan tölvuna og bora í nefið..
nei kannski ekki alveg. En ég held engu að síður að bloggandinn
hafi orðið eftir í New Mexico, hver veit nema hann komi með
einhverjum af þessum kössum mínum - jah, ef þeir koma?!
En helst í fréttum er að ég er formlega flutt suður, er samt
ekki búin að koma mér fyrir hérna í Hafnarfirðinum af því við
flytjum bráðum í Sóltúnið í Reykjavíkinni, þannig að í bili er
herbergið mitt svona allt í lausu lofti einhvern veginn. Fyrir þá
sem ekki vita er ég líka byrjuð í Versló, í 3H, sem mér sýnist
bara vera hinn ágætasti skóli. Eftir mikið vesen og
tölvupóstsendingar tókst mér loks að sannfæra áfangastjórann í
Versló að ég þyrfti nú ekki að vera í Ensku 102, en ég nefnilega
missti af helv... stöðuprófunum! Svo tók ég svona smá próf í
spænskutíma í dag til að sjá hvort ég kann nú það sem þau verða að
gera fyrir jól. Þannig að ég verð allavega í fjórum eyðum í hverri
viku, plús tveir íslenskutímar.. Þessar eyður verða að sjálfsgöðu
notaðar í lærdóm og ekkert annað!
Það er nú ekki mikið um busun hérna, en krakkarnir í bekknum
mínum voru að tala um að í Kvennó hefði busunum verið stillt upp og
ef þau hreyfðu sig út fyrir einhverja ákveðna línu væru þau komin á
einhvern "svarta lista". Þau voru alveg yfir sig hlessa á þessu og
bara áttu ekki til orð að svona væri farið með busana! Ég hló nú
bara inní mér og hugsaði að þá myndu flest þeirra deyja eða kæra
eftir busavikuna í MA, svona eftir sögunum sem ég hef heyrt þaðan
allavega.
Heyrðu já svo má ekki gleyma því að ég fór nú á ættarmót um
helgina, það var pabba ætt sko! Ekkert öll ættin, bara eitthvað
lítið, en það var mjög gaman, skemmtiatriði sem einkenndust af
kærum og Megasar-eyrum, söngur og gítar fram á miðja nótt og að
sjáfsögðu einhverju fylleríi svona..! Gaman að þessu!
Annars er bara ágætt að vera hérna fyrir sunnan sko, Steinar
bjargar mér alltaf ef stærðfræðin er eitthvað að stríða mér.. eða
bara ef annað hvort okkar þarf að væla eitthvað! Úff hvað ég var
heppin að hann flutti suður, ég segi nú bara ekki annað!
En jæja, þar sem bloggandinn svífur ekki beint yfir mér hérna er
ég að spá í að hætta þessu og fara að læra í dönsku!
Hildur Verslingur
P.S. Þess má til gamans geta að ég
hef komist að því að ég kann ekki að læra eftir frekar
auðveldan grunnskólaferil og svo eitt ár í "fríi".
»
19.08.2006 14:00:40 / hildur
Já maður fer víst ekkert á menningarnótt heldur fer ég suður á
morgun..bömmer..
Annars var gærkvöldið ansi skrautlegt, það fór mest í það að
reyna að redda einhverjum sem gæti mögulega átt startkapla eða
kynni að starta bílnum mínum (/hennar Sunnu) með því að renna honum
af stað. Árni átti nú startkapla hérna heima og við notuðum þá og
allt í góðu, ég náði í Hlyn og svo fórum við og Elfa og Steinar á
Greifann. Það var voða gott og allt, bíllinn fór í gang aftur þegar
við vorum að fara og allt virtist bara vera í orden! Svo fórum við
í Brynju svo ég gæti skilað bolunum mínum þar sem ég er nú hætt að
vinna þar, ég hleyp inn og kem út aftur.. En neeei. Bíllinn dauður.
Dang..! Eftir að hafa hringt í alla sem mögulega gætu átt
startkapla og bíl hringdi Steinar í Benna bróður sinn sem kom og
renndi bílnum í gang! Jei! Fjúff hvað ég var fegin!! Ég hefði sko
stokkið á hann og knúsað hann en ég bara þekki hann ekkert þannig
að ég lét það nú vera. Núna hélt ég nú að komið væri nóg af þessari
vitleysu og allt væri í lagi. Það var það líka, við rúntuðum
eitthvað svo rafgeymirinn gæti hlaðið sig og fórum svo heim til
Steinars að ná í geisladisk, allt í góðu, ég prófa að drepa á honum
og allt í lagi bara, en svo þegar við beygjum út úr Miðsíðunni...
dojngs.. bíllinn dauður. Steinar hélt því nú fram að hann hefði
verið í þriðja gír en ég er ekki sammála! Okkur tekst svo að ýta
bílnum niður á bílastæðið við Bjarg, en ég kem honum ekki í gang..
við reynum allt sem við getum en ekkert virkar, svo að Steinar
hringir aftur í Benna bróður sinn! Hann og frændi þeirra koma og
ekkert gengur enn, svo að við ákveðum að bíða bara eftir Axel sem
hafði bara fjárfest í startköplum! Við komum honum svo í gang og
allt í góðu.. En neeeeiii!!!!!! Bíllinn dó. Ó mæ god hvað ég var
orðin þreytt á þessu! En semsagt við kíktum eitthvað undir húddið
og Benni og frændinn komust að því að plússkautið var eitthvað
laust á rafgeyminum og eitthvað bull svo þeir lömdu það bara niður
og bíllinn startaðist eins og ekkert væri! Semsagt voru hetjur
gærkvöldsins Axel og Benni! Góður endir.. á ofboðslega góðri
sögu!
Svo fann ég líka fimmhundruðkall!
En jæja nú er nóg komið af bulli, ég er farin að gera eitthvað
gáfulegra...
Hildur bifvélavirki..! hah..
»
14.08.2006 12:33:57 / hildur
Jæja kominn tími á blogg já..
Núna er ég að fara suður bara eftir nokkra daga, kem beint á
menningarnótt! Ekki slæmt það.. En já svo bara byrjar Verzló næsta
mánudag, kannski ég ætti að fara að versla mér bækur svo ég geti
lært?! Hah.. ef ég kann það þá enn eftir mjög áreynslulaust ár í
the US of A.. Svo er ég að spá í að reyna bara að finna mér svona
eins og eitt stykki vinnu þarna fyrir sunnan, annað gengur nú
ekki!
Annars svona er ekkert mikið að frétta sko, ég fór á Dalvík um
helgina með Fanney og fleira fólki og það var bara nokkuð gaman
skoh! Svo hittum við alls konar lið og þ.á.m. Elfu Björk sem við
tókum svo með heim, tókum reyndar ekkert mikið eftir henni í bílnum
þar sem hún svaf bara! Ekki gott að hafa hana til að halda sér
vakandi.. Versló var fín líka bara.. eins gott að ég er með
bílpróf, ég segi nú ekki annað. Núna er ég líka mjög mikið með
rolluna hennar Sunnu (Corolluna semsagt) sem er bara hið besta mál
sko! Ekkert leiðinlegt að vera á bíl sko..
Jæja, eitt stykki comeback blogg komið! Gott! Sé ykkur bara!
Hildur - 5 dagar í höfuðborgina!
p.s. já sko ég ætlaði náttúrulega að setja myndir inn og svona..
ég man ekki hvað ég var búin að setja, verð að fara að skoða
þetta.. en ég geri það ekkert fyrr en ég er komin suður í ADSLið og
allt það þið skiljið..
»
21.07.2006 02:09:42 / hildur
Ég nenni ekki að blogga í bili.. kannski þegar ég fer suður eða
eitthvað.. Hildur!
»
15.07.2006 18:54:49 / hildur
Ég er komin með bílpróf!!!! Jei!! Förum
ekkert út í prófið samt... en ég meina ég náði 
Annars hef ég bara verið að vinna og ekki vinna og passa og ég
fór til Húsavíkur að hitta pabba og Regínu.. svo komu mamma og
Jónsi og eru búin að vera hér um helgina.. Ég nenni ekki í vinnuna
á eftir samt, það er ógeðslega mikið rok! oj
Ég hitti líka Magneu Dröfn áðan! Jei! Það var gaman
Hildur keyrari! híhí
»
10.07.2006 00:28:17 / hildur
Já ég hef nú bara hreinlega komist að því að Brynja er
stórhættulegur vinnustaður... só far hefur verið ráðist á mig
af:
- þristabitum
- óteljandi brauðformum
- og Lindu!
Svo bara er þessu ekkkert að linna og ég er alltaf eitthvað
næstum að detta um nýskúrað gólf eða svona sósuslettur eða
eitthvað, og nei, þetta hefur ekkert að gera með minn klaufaskap
sko!! haha..
Hérna já annars er ég nátturulega meistari í Party og co.. held
að ég og Hlynur séum eitthvað besta lið sem sést hefur!
Bílpróf í vikunni eða? Það er allavega ekki seinna vænna rúmlega
hálft ár síðan ég hefði getað fengið það.. ! Já maður verður að
drífa í þessu, annars er ég að hugsa um að hefja starfsferil sem
ökukennari, en þó sérstaklega fyrir hana Elfu mína sem er nú samt
bara hinn frábærasti bílstjóri sko! Allavega miðað við að hafa
alveg 0% áhuga á því að keyra!
Heyri í ykkur (eða náttúrulega sé ykkur)! Ykkur er alveg óhætt
að láta heyra í ykkur ef þið eruð svona á stór-Akureyrarsvæðinu!
híhí..
Hildur - úff ég hlakka til að fá bílpróf!!!!!!!!
»
04.07.2006 17:22:35 / hildur
Já ég held ég verði að blogga aðeins.. annars er ég nú bara nánast
búin að gefast upp á tölvum, ég nenni þessu eiginlega ekki og þarf
að stroka út annan hvern staf vegna þess að ég fatta að það ERU
íslenskir stafir á lyklaborðum hérna..! Annars er ég bara hérna
uppá bókasafni, er að fara í Ö2 á eftir með henni Sunnu gellu.. Það
er að sjálfsögðu alveg ofboðslegt stud, hef sjaldan skemmt mér
svona vel. Uhu uhu.. Mér tókst samt að sofna þarna í gær, alveg
sama hvernig ég sat, alltaf var ég aaalveg að sofna. Í dag fór ég
svo í bæinn í miklar erindagjörðir, mundi meira að segja að fara
með úrið mitt til úrsmiðs, fá læknisvottorð fyrir bílprófið (af því
ég nota gleraugu), versla með Ólöfu og allt.. Núna er ég semsagt að
bíða bara.. Hef farið alveg afbrigðilega mikið á Bláu Könnuna
undanfarna daga.. haha.. En já það er nú bara mest lítið að frétta
héðan, áttaði mig á því í morgun að ég er dýr í rekstri. Gaman að
þessu. Svo var ég nú að lesa einhver gömul Hér og nú blöð, komast
inní íslenska slúðrið síðan um jólin sko! hah.. Úff hvað ég er tóm.
Ekki fara á The Lake House. Hún er hræðilega leiðinleg. Ég GET EKKI
skrifað á þetta lyklaborð!!!! Hildur.. sé ykkur í Brynju bara?!
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|